Færsluflokkur: Bloggar

VG: Vinstri Gaddafi hvað?

Mér er sagt flokksráð VG sé eftirsótt við mælingar á andlegu atgerfi. Þá eru tveir eða fleiri flokksráðsmenn tengdir saman til að núllstilla greindarvísitölukvarðann áður en gerðar eru greindarmælingar á okkur hinum.

Barnaskapur og hálfvitaháttur er þetta að fordæma hernaðaraðgerðir NATO gegn einræðisherra sem strádrepur þegna sína fyrir það eitt að vilja lýðræði. Án NATO hefði uppreisnin mistekist og þúsundir saklausra borgara látið lífið - munurinn er sá að þeir hefðu verið drepnir af Gaddafi sjálfum í hefndarskyni.

mbl.is Fordæma aðgerðir NATO í Líbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlendingastofnun er okkur til skammar

Hvað tefur að finna úrlausn fyrir allt þetta flóttafólk sem bíður eftir því að fá úrlausn sinna mála? Hvað skyldu margir starfsmenn Útlendingastofnunar starfa við að vinna í málum þessa manns? Eftir hverju er verið að bíða? Að hann gefist upp og fari eitthvert annað?

Kannski er það hlutverk Útlendingastofnunar að bíða bara uns það "leysist" úr málum mannsins án aðkomu stofnunarinnar. Það væri týpískt fyrir íslenska ríkisstofnun.

Maður skammst sín fyrir að vera Íslendingur þegar kemur að frammistöðu okkar í mannúðarmálum tengd flóttamönnum. Þetta mál, og fleiri svipuð, minna á framkomu íslenskra embættismanna fyrir seinni heimstyrjöld þegar þeir neituðu Gyðingum um landvistarleyfi og sumir þeirra enduðu í gasklefunum.

mbl.is Mikil hætta skapaðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brotnir sjórnmálaflokkar, klofnir, fúnir, fúlir, fámennir og villuráfandi...

Það er greinilegt að það vantar heilsteypt nýtt stjórnmálaafl á Íslandi.

Framsóknarflokkurinn er jókerinn í stokknum og það læðist að manni grunur að það hafi verið vitlaust gefið. Liðsmennirnir eru mislitur hópur eins og þessi frétt sýnir. Kannski af því formaðurinn er málafylgjumaður og út úr hans munni koma kennisetningar sem fæstir hefðu trúað upp á Framsókn - og þá laðast að flokknum fólk sem ekki á heima þar. Og áfram heldur leiðtoginn að útvíkka sjóndeildarhringinn í leit að kjósendum með slíku offorsi að hann virðist stundum vera í röngum stjórnmálaflokki. Sumir telja málafylgjuna jafnvel stafa af menntunarskorti.

Innviðir Sjálfstæðisflokksins voru í eina tíð kjörviður og kjölfesta þjóðfélagsins. Nú, undir merkjum Bjarna Ben er þetta feyskinn "vafningsviður" að kikna undan "fortíðarljóma" fyrri leiðtoga.

Vinstri Grænir, uppvakningur Alþýðubandalagsins, er eins og kommúnistasella í menntaskóla þar sem meðlimirnir eru að leita að hlutverki til að gegna í óljósri framtíð. Daglega velja þeir völdin á kostnað sannfæringarinnar. Sorglegt að það skuli ekki vera hreintrúaður kommúnisti til á Íslandi heldur eintómar lélegar eftirlíkingar.

Hreyfingin dæmir sig sjálf. Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þingmenn og konur. Baklandslaus þá nær barnsleg einfeldni þeirra, jaml of fuður bara svona langt...

Samfylkingin er með Stokkhólms-syndróm sem fangi eigin hugmyndafræði sem birtist í veggjakroti í sjálfskipuðum fangaklefa. Flokkurinn er gersamlega bæ-pólar og stofnanamatur - enda munu þingmenn hans og ráðherrar enda á ruslahaug Íslandssögunnar sem dæmi um síðasta útvígi gamla tímans. Þetta er samfylking þeirra sem vita hvorki hvert þeir eru að fara né hvaðan þeir koma.

Til hvers að kjósa nýtt Alþingi þegar valkostirnir eru svona?

mbl.is Frjálslyndur hópur finnur sig ekki í flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Gnarr eða Jesús - hvor aðferðafræðin er vænlegri til árangurs?

Jesús umgekkst skattheimtumenn, át með þeim og drakk, og fariseiar fóru á límingunni. Þeir skildu ekki af hverju Jesús fordæmdi ekki þessar afætur vinnandi fólks. Af samneytinu við Jesú þá hafa eflaust margir skattheimtumenn fyrr og síðar ratað til betri vegar.

En friðarboðinn Jón Gnarr notar aðrar aðferðir:

Hingað eru mættir "atvinnuófriðarsinnar", í þessu tilfelli þýskir sjóliðar. Þeir munu ekki sjá villu síns vegar í samneyti við borgarstjóra enda notar hann ekki Jesúaðferðina til að boða frið. Gnarrinn mætir gestunum ekki friðelskandi og kærleiksríkur á kæjanum heldur ullar á þá úr fjarlægð, að eigin sögn í baráttu sinni fyrir heimsfriði.

Hvað er eiginlega langt í næstu borgarstjórnarkosningar?

mbl.is Á móti hernaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski Finnur Ingólfsson geti lánað OR milljarð eða tvo?

Orkuveitukreppan er skítamál og afleiðing pólitískrar spillingar. Það er löngu tímabært að stinga á kauninu og hreinsa út.

Meðan Finnur Ingólfsson var seðlabankastjóri og flokksbróðir hans Alfreð Þorsteinsson stýrði Orkuveitunni seldi OR alla hitaveitu- og rafmagnsmæla höfuðborgarsvæðisins til Frumherja fyrir rúmlega 200 milljónir.

Á þeim tíma mátti Finnur ekki vera í prívat bissness embættis síns vegna - svo kjaftasagan segir að hann hafi látið leppa sig víða og svo greitt götu leppanna með viðteknum framsóknaraðferðum. Kannski er þetta haugalýgi runnin undan rifjum pólitískra andstæðinga - hvur veit? En meðan engin rannsókn hefur farið fram á mælasölu OR þá standa kjaftasögur jafnfætis pólitískum hreinlífiskenninum.

Síðan þegar Finnur losnaði úr embættinu þá fór hann beint út í bissness - big bissness. Og viti menn, hann keypti meirihlutann í Frumherja ehf. Sá hlutur hlaut þá að vera mikils virði enda var fyrirtækið með tekjuáskrift upp á ca 200 milljón á ári kr frá OR. Samningurinn við OR var semsagt rúmlega milljarðs virði að frádregnum kostnaði. Hvað skyldi Finnur þá hafa borgað fyrir allt fyrirtækið?

Dæmið leit sem sagt vel út Frumherja megin enda góður bissness að fjárfesta rúmlega 200 milljónir í eign sem gefur tæplega 200 milljónir í leigutekjur á ári.

Annað má segja um hagsmuni Orkuveitunnar: Hvaða snillingur hjá OR reiknaði út að að væri góður bissness fyrir OR að fá 200 millur í kassann og borga þær strax aftur í leigu á næsta fjárhagsári? Hvaða snillingur seldi þar á bæ trúði því að svona leigusamningi væri hægt að rúlla til baka án þess að það kostaði margfalt söluverð mælanna? Hvernig verður svona "díll" til? Hver ber ábyrgðina? Það þarf ekki að spyrja að því hver ber skaðann. Það erum við.

Staðreyndin er að OR gerði samning við Frumherja til sjö ára frá 2001 og sá samningur var endurnýjaður til annarra sjö ára 2008. Ef þessum sjálfvirka leigusamningi yrði rift þá þarf OR að endurfjármagna alla mæla höfuðborgarsvæðisins og skipta þeim út fyrir mæla Frumherja. OR gæti keypt mælana aftur af Finni en bókhaldslega hljóta þeir að vera milljarða virði fyrir Frumherja enda gefa þeir fyrirtækinu stöðugar leigutekjur til margra ára.

Ég hef ekki nákvæmar tölur en mér reiknast til að leigutekjur Frumherja séu kr. 2.000.000.000.00 á þessum áratug sem er að líða. Þetta er óþarfa kostnaður fyrir OR og orkuaupendur.

Setjum þessa tvo milljarða í samhengi: Mælaútgerð OR kostaði smáuara í samanburði en öll mæladeildin var að ég held 5-6 stöðugildi.

En það er auðvelt að vera með æsing og dylgjur þegar allar tölur og samningar eru "trúnaðarmál" og okkur hulin.

Nú hefur Finnur sagt opinberlega að arðsemistölur um mælakaup og leigu sem hafa birst í fjölmiðlum og bloggheimum séu ýktar og út úr kú. Þetta sé ekki svona góður bissness heldur bölvað basl eins og allt annað í kreppunni. En frumherjinn Finnur hefur ekki birt neinar tölur til að hrekja þessa slembiútreikninga. Hann situr frekar undir ámælinu og spillingaraðdróttunum. Skrítið...

Kannski Jón Gnarr vilji vera svo vænn að opinbera þennan gjaldpóst eða einhver hjá OR taki af skarið??

Hér er hugmynd fyrir borgarstjóra - hvernig væri að slá lán hjá Finni til að hjálpa Orkuveitunni? Ekki veitir af.

mbl.is Of langt gengið í hækkunum

mbl.is Höfuðstöðvar seldar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborg kerfisins - svona á að fela sannleikann

Í öllum "eðlilegum réttarfarsríkjum" getur aðili að dómsmáli krafist þess að fá vitni leidd fyrir dóm til að fá sannleikann fram. Vitnin geta þá mótmælt, reynt að koma sér undan, misst minnið, sagt satt fyrir rétti eða logið - en hér á Íslandi þá sér réttarkerfið um að fela sannleikann. Það þarf enga samsæriskenningasmiði til að sýna fram á að dómstólar nota orð eins og "aðildarskort" til að halda vitnum frá dómi. Íslenskt réttarfar er eins og kópía úr Kardimommubænum.
Svokallaðar "Discovery Rules" í BNA eru til fyrirmyndar þegar kemur að því að finna sannleikanum farveg innan réttarkerfisins. Hér á Íslandi skiptir sannleikurinn ekki máli. Sorglegt að sjá þetta réttlætismál Þorsteins stranda á einbeittum vilja dómskerfisins sem vill ekki hleypa sannleikanum inn í réttarsalinn. Kerfið slær skjaldborg um sína menn.
mbl.is Fær ekki að leiða vitni fyrir dóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Rules of Discovery" og íslenskt réttarfar - djók!

Í siðmenntuðum löndum getur lögmaður krafist þess að fá allar upplýsingar gagnaðila. Þetta er "uppgötvunarréttur" sem í USA kallast "Discovery". Hér á Íslandi er þetta hugtak ekki til enda er dómskerfið samanplástraður danskur nýlenduuppvakningur.

Á Íslandi er gengið út frá drengskap lögmanns andstæðings að láta allar upplýsingar í té, líka þær sem mótaðili hefur ekki hugmynd um að sé til en gæti nýst honum við sókn málsins. Við sem þekkjum móralskan kompás sumra íslenskra lögmanna vitum að það eru meiri líkur á að vinna í lottóinu - enda er gætu sumar upplýsingar komið sér illa fyrir skjólstæðing viðkomandi. Hvar er þá hvati lögmanns til að opinbera allt?

Maður les í gegnum þessa frétt að málið gegn Kaupþingi hefur verið höfðað í hálfgerðu myrkri þeirra sem töldu bankann hafa brotið á sér. Ef þetta mál hefði farið fyrir t.d. bandaríska dómstóla þá hefði lögmaður fólksins átt fundi með bankamönnum sem hefðu undir eið staðfest tilvist vitna og gagna.

En hér er þetta blindskák enda er lagahugtakið "Discovery" ekki til í íslenskum réttarfarsreglum, nema þá kannski húsrannsóknarheimildir saksóknara. Erlendum lögmönnum finnst þetta skrítið svo ekki sé meira sagt. Enda er oft dæmt í málum þar sem gögn hafa verið falin eða "finnast" ekki. Þessi tilvitnun í fréttinni sýnir að þetta er líklega vandamálið hér:

"Héraðsdómur segir í niðurstöðum sínum, sem Hæstiréttur staðfesti, að bótagrundvöllur sé vanreifaður og því beri að vísa málunum frá. Umrædd viðskipti hafi farið fram frá árinu 2001 til 2009 og stefnendur geri enga grein fyrir því tjóni sem þeir telji sig hafa orðið fyrir. Þá geri þeir enga grein fyrir því í hverju hin meintu brot starfsmanns bankans hafi verið fólgin og reifi ekki tengsl athafna eða athafnaleysis starfsmannsins við meint tjón eða útskýri hvernig vanræksla og eftirlitsleysi bankans tengist meintu tjóni. "

mbl.is Töpuðu stórfé í eignastýringu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ábyrgð" - innhaldslaust skrautyrði þegar ráðherra notar það um sjálfan sig..

...en þetta sama orð "ábyrgð" er hlaðið merkingu þegar þessir sömu menn eru í stjórnarandstöðu.

Þá þýðir orðið ábyrgð sko ÁBYRGÐ! Þá fylgir þessu orði kvöð um að ráðherra segi af sér, gjaldi mistakanna, standi reikningsskil gjörða sinna. Þá á orðið ábyrgð að kenna lexíu, þ.e. vera öðrum ráðherrum víti til varnaðar um alla framtíð.

Svo þegar sami maður er sestur í ráðherrastólinn, þá fær orðið ábyrgð allt aðra merkingu.

Skrítin tík þessi pólitík.

mbl.is Allir þurfa að axla ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samanburður á dómum árin 2011 og 1875 - refsiramminn í 135 ára tímaspegli

Maður er dæmdur fyrir vopnað rán árið 2010 og fær 6 mánaða skilorð. Maður er dæmdur fyrir þjófnað og tilraun til innbrots árið 1875 og fær 22 mánaða fangelsi.

januar 1875

Bíddu við - vopnað rán? Er það ekki efst á skalanum þegar rán eru annars vegar?

Hvað ætli viðkomandi hefði fengið stutt skilorð hefði hann ekki verið vopnaður? Sex vikur? Mánuð? Svona dómar sýna að íslenskt réttarkerfi góssenland fyrir vopnaða ofbeldisglæpi.

Dómarar og krimmar vita manna best að það er tilgangslaust að dæma neinn í fangelsi af því það er ekkert pláss. Harðir dómar auka bara á vandamálið. Væri ekki nær að dæma vopnaða dópista/sjoppuræningja til vistunar á meðferðarstofnun fyrir fyrsta brot?  

Æ, hvernig læt ég. Það er ekkert pláss þar heldur...

Er verið að fela vandamálið með svona dómum - þ.e. að laga tölfræðina svo ekki fjölgi í biðröðinni inn í fangelsin? Það væri týpísk kerfisvörn. Allir í dómskerfinu fá þá sinn ávinning - nema þeir sem verða næst fyrir vopnuðu vopnuðum dópista sem heimtar pening og það strax. Ef ræninginn les blöðin þá veit hann að vopnuð rán eru smámál. Skilorðsdómarnir sýna það og sanna.

januar 2010

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband