Færsluflokkur: Spaugilegt

Hvað ef Paul Giamatti stefnir Heiðari Má?

Fornvinur minn er karakterleikari í Hollywood sem kallar ekki allt ömmu sína. Sá er nú í léttu áfalli yfir myndbirtingu blaðanna hér af "meintum von-fjárfesti" sem er annálaður sem ótíndur glæpon í DV og á sér ekki uppreisnar von nema réttarkerfið sjái aumur á honum. Hollywoodleikarinn heitir Paul Giamatti og er annt um orðspor sitt, sérstaklega þegar kemur að óskiljanlegum íslenskum fyrirsögnum og myndinni af tvífaranum Heiðari Má Guðjónssyni. 
Heidar_OG_Giamatti
Hvað er til ráða fyrir Paul þegar allar líkur eru á að myndin af tvífaranum - Heiðari hinum fjárfasta - verði áfram á forsíðu DV tengt fréttum eða ekki-fréttum um fjármálasukk og svínarí. "Jon, should I be worried?" spurði Paul.

"Eh, well...," stamaði ég og lýsti svo íslensku réttarkerfi í nokkrum vel völdum setningum - og Paul setti hljóðan. "I see what you mean. That sign with the fucking fuck reference was no joke."  

Nú er Paul að skoða skrilljón dollara skaðabótastefnu gegn blaðamanni og ritstjóra DV, og Heiðari Má í New York fyrir myndrænar dylgjur.  Í millitíðinni lofaði ég að finna út hvort blaðamaðurinn, ritstjórinn og Heiðar kunni ensku? Það sakar ekki að skoða vinsælustu varnartaktíkina þegar kemur að alvöru réttarkerfi. 

mbl.is Fer fram á 5,6 milljónir króna vegna umfjöllunar DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvurslax Íslenskunotgun, eridda eyginliga?

Ég vil taka það fram strax að frétt um kartöfluflögur og kúk í rútu á erindi til allra fréttaunnenda. Ég hef fylgst með þessu máli frá byrjun og bíð spenntur eftir úrlausn gátunnar: Hver skeit á rútugólfið og hver hellti úr flögupokanum?

Öllu alvarlegra er glæpsamlegt málfar blaðamanns, stafsetning og kommunotkun sem hefur skilið eftir sig "kúk og kartöfluflögur" um alla fréttina. Einhver sagði mér að reyndir blaðamenn væru með of há laun og því ráða miðlarnir ódýra ungliða sem ekki kunna betri íslensku en raun ber vitni. Hér fyrir neðan er upprunalega fréttin lesendum til ánægju og yndisauka en yfirleitt þrífa prófarkalesarar mbl.is upp eftir blaðamanninn svo kannski er núverandi netútgáfa í lagi. Hér er svo fréttin:

Nemendur hafðir fyrir rangri sök

Ljóst þykir, að nemendur sem voru á leið frá Skagafirði og Húnavatnssýslum til Akureyrar með rútu nýlega voru ekki að verki þegar sturtað úr flögupokum í sæti bílsins og einkver gerði þarfir sínar á gólf bílsins.Vefurinn feykir.is sagði nýlega frá þessu og þá kom fram, að ungmenni hefðu setið aftast í rútunni og farið út við Menntaskólann á Akureyri. Nú segir feykir.is, að athugun hafi leitt í ljós að nemendur framhaldsskóla á Akureyri,.sem komu í rútuna á Blönduósi og í Varmahlíð sátu ekki aftast þar sem atvikið átti að hafa gerst. Líklega hafi þar verið um veikan einstakling að ræða.Óskar Stefánsson framkvæmdastjóri Bíla og fólks, segir við vefinn, að málið sé afskaplega viðkvæmt þar sem hugsanlegt sé að hér sé um barn að ræða eða vanheilan einstakling.„Málið var ekki og verður ekki kært og við erum að reyna að komast til botns í þessu. Nemendur eiga engan þátt í þessu og hafa verið afskaplega jákvæð við að upplýsa málið með okkur. Við höfum sent þeim bréf í skólana varðandi þetta mál," segir Óskar við Feyki.Feykir.is


mbl.is Nemendur hafðir fyrir rangri sök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

CIA, LSD, hvalkjöt og réttlæti þessa heims.

Sushi kokkur í Los Angeles hefur verið ákærður fyrir að "byrla" veitingahúsagestum hvalkjöt. Alríkislögreglan var með svokallaða "sting operation" sem fletti ofan af glæpakokknum.

Samhengið við eiturbyrlun CIA í Frakklandi eftir stríð er náttúrulega fáránleg. Ennþá hefur enginn verið ákærður fyrir að LSD-eitra fyrir heilu bæjarfélagi nú 60 árum síðar. En sushi kokkurinn situr í súpunni.

Hvalkjöt versus LSD. Hmm...

Við íslendingarnir hér í suður Kaliforníu höldum þorrablót um næstu helgi. Nú er eins gott að vera á varðbergi fyrir FBI og mögulegum "önderkover operatifs" sem gætu slæðst inn á hófið og smakkað á góðgætinu, tekið sýni, handtekið kokkinn. Jafnvel báða kokkana. Það hefur komið upp hugmynd um að kokkarnir okkar klæðist síðum regnfrökkum og útbýti hval og öðru lostæti í húsasundinu við hliðina á hótelinu. Slútandi hattbörð og uppbrettir frakkakragar munu torvelda vitnisburði viðtakenda ef til handtöku kemur. Engir fjármunir munu skipta um eigendur í húsasundinu svo það ætti að vera óhætt fyrir þá sem þiggja bitann. Affarasælla er að þiggja en gefa skv lögum hér vestra. Íslendingafélagið sem selur aðgang að blótinu gæti aftur á móti þurft á góðum lögfræðingi að halda. Svokölluðum "kriminal lojer".

Já, guð hjálpi kokkunum og allri íslensku þjóðinni ef löggan grípur þá glóðvolga með þorramatinn. Ástkæri, ylhýri klakinn kæmist þá í heimsfréttirnar fyrir enn einn glæpinn, (útflutning á ólöglegum fæðuefnum) og það ofan á æseif, bankahrunið, og allt hitt.

Hér er frétt Los Angeles Times um hvalkjötsglæpinn: http://www.latimes.com/entertainment/news/wire/sns-ap-us-whale-sushi-sting,0,2114925.story


mbl.is Gerði CIA tilraun með LSD á heilu þorpi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef böndin berast að þér...

...bentu þá á aðra og segðu að allt sem miður hefur farið sé þeim að kenna. Þetta er gamalt trix sem virkar oftast vel til að halda saman heiladauðum stuðningsmönnum og vinna til liðs við sig þá sem hugsa skammt og skilja fátt.

Nú á tímum þegar klappstýrur Sjálfstæðisflokksins hafa fá eða engin fagnaðarefni í afrekaskrá liðinna ára þá er brugðið á gömul ráð: "Aðrir flokkar eins og Framsókn, og sérstaklega Samfylkingin, hafa komið út úr þessu eins og hvítþvegin bleyjubörn sem hafa ekki komið nálægt neinu.“

Áttu annan?


mbl.is „Hvítþvegin bleyjubörn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dr. Jekyll & Mr. Sigfússon

Gagngerar persónuleikabreytingar hafa átt sér stað í neikvæðasta manni Íslandssögunnar. Í stjórnarandstöðu var ekki einu sinni hægt að hella upp á kaffi í ráðuneyti án þess að Steingrímur Joð fyndi því allt til foráttu. Nú er öldin önnur. Steingrímur valhoppar um íslenskan stjórmálahaga, tínir sóleyjar og kastar fingurkossum um þingheim allan. Skrítin tík þessi pólitík...


mbl.is Skuldir þjóðarbúsins meiri en áður var talið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

forréttindaþjóðin ísland og bandarísk lög...

Ég leyfi mér að fullyrða að innflytjendalög USA eru mun sanngjarnari en innflytjendalög á Íslandi.  Þetta Elru Óskar mál er ekki einu sinni fréttnæmt enda er greinilega bara hálf sagan sögð. Venjulegt hugsandi fólk hefði kynnt sér hvað bar að gera til að fá að koma aftur til USA eftir að hafa brotið innflytjendalögin.

Kjarninn í þessum fréttaflutningi er hversu ósanngjarnir landamæraverðirnir voru hleypa ekki konu inn í landið. Og að meðferðin hafi verið ómanneskjuleg á meðan hún beið eftir næstu flugvél heim aftur.

Ég þekki aðeins til þessara mála þar sem ég er að vinna heimildarmynd um innflytjendamál USA og hef skoðað hundruð af svipuðum málum. Handjárn eru eftir því sem ég best ekki notuð nema fólk sé með einhver læti eða líklegt til að skaða sjálft sig. Eflaust hefur konunni brugðið við að vera vísað úr landi og viðbrögðin eftir því. Kannski hafa þeir fundið vínlykt líka en hún segist hafa drukkið eiitt hvítvínsglas í flugvélinni. Svo er það 14 klst biðin án matar og drykkjar. Ein aðferð sem þeir nota er að leyfa fólki að "cool down" og láta það afskiptalaust á meðan. 

 Já, hér er ekki allt sem sýnist...

Forsendurnar fyrir þessari "frétt" eru bull. AÐ ætla að vaða í gegnum vegabréfaskoðun á "íslenskum forréttindum" einum saman er bara bull og að ætla að krefjast afsökunar á framkomu landamæravarða án þess að hafa alla söguna er enn verra bull. Utanríkisráðherra ætti að athuga sinn gang áður en hún fer í þann slag.


mbl.is Mun krefjast afsökunarbeiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband