Ljótari kassi vandfundinn

Góð hugmynd að byggja hótel. Slæm hugmynd að byggja þetta hótel. Ég smellti á linkinn í fréttinni til að skoða fyrirhugaða hótelbyggingu við Leifsstöð.

Vúff! Ef þetta er fyrsta mannvirkið sem ber fyrir augu þeirra sem koma að heimsækja landið - n.b. hótelið er staðsett við útkeyrsluna frá Leifsstöð - þá sé ég ekki nema eitt jákvætt við það: Frá þeirri stundu verða allar íslenskar byggingar fegurri og tilkomumeiri en þessi. Reyndar held ég að skóflustungan sem tekin var um helgina, þ.e. gapandi sárið í hrauninu, sé meira augnayndi...


mbl.is Byggja hótel við Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjartanlega sammála þér, mér klossbrá þegar ég sá myndina af þessum ljóta kassa við Leifsstöð. Mikið klúður á annars góðri hugmynd.

elias (IP-tala skráð) 15.3.2010 kl. 23:05

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Lítur út eins og gamli Klúbburinn, nema heldur ljótara. Ég vil kalla svona hryðjuverk.  Hver fer á svona hótel nema í neyð?  Vilja þeir ekki bara byggja svona skápahótel eins og í japan?  Þetta er rosalegt.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.3.2010 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband