Alltaf sama tregðan og hræðsla við breytingar

Þetta EES ferli er að verða eitt augljósasta dæmið um tregðu landans að breyta því sem er að hrjá þjóðfélagið, stinga á kýlið og hreinsa út.

Skoðum Bændasamtökin og allt það hagsmunabattarí. Ég heyrði góða skýringu á núverandi kerfi en hún er svona:

EES reglugerðir kveða á um að ráðuneyti landbúnaðarmála sé alfarið í forsvari fyrir þessum málaflokki en í íslenska kerfinu er ekki nema 20-30% af "valdinu" í höndum ráðuneytisins - restin er hjá "fagaðilunum" sjálfum og þeirra hagsmunasamtökum. Kannski er þessi skýring rétt analísa á sjálfskipuðu verndarkerfi fagaðila í landbúnaði og sjávarútvegi. Hún hljómar allavega mjög íslensk.

Er það þá furða að þessir "fagaðilar" vilji ekki taka þátt í ferli sem hefur það markmið að gera þá valdalausa og áhrifalitla í hreppapólitískum skilningi. Þá er farinn klíkuskapurinn, samtryggingin, spillingin, og í staðinn kemur regluveldi sem er ekki að þjóna Palla frænda eða Jóni útí sveit. Hvað yrði þá um niðurgreiðslur, mjólkurkvóta, tómataverðið, alla styrkina...? Vúff, válistinn er endalaus.

Bændur eru sem stétt eru háðir breytingum sem þeir hafa enga stjórn á. Þjóðfélagið breytir neysluvenjum og bændur þurfa að aðlaga sig að því. Veðrið breytist, tún kala eða sauðburður mistekst, bændur aðlagast. Innflutnings- og tollareglur breytast og bændur aðlagast. Er nokkuð skrítið að þeir vilji hafa smá kontról í kerfinu sem hlúir að rekstrargrundvelli "fagsins". Þetta er íslenska aðferðin.

EES aðferðin gefur minna færi á spillingu meðan íslenska kerfið er í endalausri framsóknarvist. EES aðferðin þýðir líka að bændur þurfa að aðlaga sig að reglum sem hafa sannað sig á meginlandinu að virki og þeir munu ekki hafa nema lítil áhrif á. Það verða þjáningar við þær breytingar en vandinn liggur ekki í nýju reglunum heldur núverandi kerfi sem byggir á stundarhagsmunum fagsins og íslenskri pólitík - sem sagt gildum sem hafa ekki reynst okkur vel.

Rökin sem bændur (og EES andstæðingar) nota nú gegn yfirvofandi aðlögun eru skondin. Fyrst var talað um kostnað og óþarfa fjáraustur. Já en það er Evrópusambandið sem borgar okkur milljarða til að vinna þessa vinnu! Æ, æ, - en þá var talað um að þetta væru mútur. Og enn er talað digurbarkalega um allan kostnaðinn við undirbúning og aðlögun, bla, bla, bla. Það er sama þótt Ísland sé þiggjandinn og kostnaðurinn fari inn í efnahaginn hér til að skapa störf og verðmæti og þekkingu. Veitir nokkuð af slíku, spyr ég. Hvaða skaði er að því að nýta þetta tækifæri til að laga íslenska stjórnsýslu? Jú, hagsmunahóparnir munu á missa fótanna í kerfinu. Það er orsök tregðunnar. Ekkert annað.

Maður er minnugur þess að talsmenn tregðunnar hér eru sömu "fagaðilar" og mótmæltu komu símans á sínum tíma. Nánast allar breytingar í íslenska stjórnkerfinu undanfarna áratugi hafa verið fyrir atbeina EES og sumar hafa verið sársaukafullar. Ein sú fyrsta var í dómskerfinu þegar Evrópusambandið skikkaði okkur til að skilja í milli sækjanda og dómara á lægsta dómstiginu, - arfur okkar frá nýlenduveldi dana. Þá var líka vælt og skælt. Alltaf sama tregðan...


mbl.is Neituðu að lána starfsmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég skil nú bara ekki hvað er verið að hlusta á einhverja bændur þegar að kemur að umræðu um Evrópusambandið, þó að þessi grein hafi sautjánhundruð og súrkál skipt einhverju máli hér þá er það löngu liðin tíð. Ætli kúrekar hafi haft jafn mikil áhrif á umræður um NAFTA eins og bændur hafa um Evrópusambandið?

Ólafur (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 13:29

2 identicon

Jón, telurðu virkilega að skrifstofublók suður í reykjavík eða Brussel kunni betur með mál landbúnaðar á Íslandi að fara en bændur sjálfa ?  Það tel ég afar ólíklegt.

Það hefur hingað til ekki háð bændum að geta ekki brugðist við nýjum aðstæðum, td er kornrækt kominn á mikið flug á Íslandi, svo bara eitt dæmi af mörgum sé nefnt.   En hvað þú átt við með  "sauðburður mistekst" veit ég ekki. ;-)

Nú auðvita eru þetta ekkert annað en mútur sambandsinns, þessi fjáraustur hingað, til að aðlaga kerfið sambandinu, þannig er það amk frá mínum sjónarhóli.

Ég er nú þeirrar skoðunar að bestur árangur náist þegar fagaðilar sjá um málefnin, a.m.k. hefur stjórnsýslufólkinu í reykjavík  ekki tekist svo vel upp við það.

Kv. Bjössi.

Bjössi (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 14:40

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég segi bara til þeirra sem vilja í ESB að flytja þangað og eða hefja heiðarlega baráttu fyrir inngöngu en hingað til hefir fólk verið kúgað og umsókn send inn í óleyfi en hún fékk enga undirskrift eins og á að gera við stjórnarerindi sjá Grein 19 í stjórnarskránni. 

Valdimar Samúelsson, 4.11.2010 kl. 15:00

4 identicon

Valdimar minn, ef að við göngum ekki inn í ESB þá er það sem þú stingur upp á einmitt það sem mun gerast. Fólk mun tugþúsundum saman forða sér héðan og flytja sjálft sig inn í ESB þegar blákaldur veruleikinn mun blasa við að hér verðum við einangruð með ónýtt orðspor, ónýtan lánakredit og að sjálfsögðu ónýta hagstjórn héðan frá sem hingað til. Eina spurningin er hvort þú hafir virkilega svona mikin áhuga á að sitja uppi með að borga upp skuldirnar sem eftir sitja sjálfur?

Ólafur (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 15:30

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Fólk flytur ekkert út í tugþúsundum meðan annað fólk frá ESB kemur hingað í tugþúsundum. Hvort sem er þá skuluð þið sækja um samkvæmt lögum en ekki ólögum og klækjum með þessari ósamþykktri falsumsókn.

Valdimar Samúelsson, 4.11.2010 kl. 15:36

6 identicon

Helsta hlutverk Bændasamtakanna, hefði maður haldið, er að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna. Í því felst m.a. að koma að aðildarsamningum við ESB, en þrjóska kvótagreifanna í Bændahöllinni er greinilega slík að þeir hafa ekki enn viðurkennt að umsóknarferlið sé hafið og þar með bregðast þeir bændum, þ.e. þeim sem þeir telja sig vera að vinna fyrir.

Ingimundur Bergmann (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband